Skráðu þig

Náum fótfestu

námskeið fyrir konur sem eru að slíta ofbeldissambandi við barnsfeður sína

Sambandsslit eru almennt sársaukafull og geta reynst sérstaklega flókin þegar ofbeldi kemur við sögu. Námskeiðið hentar hvort sem þú ert að stíga fyrstu skrefin eða komin lengra í átt að sjálfstæði.

Hefst
6. október 2026þriðjudagur
Umfang
Sex skiptialla þriðjudaga, kl. 17:00–19:00
Staður
HeilshugarSkipholti 25, 105 Reykjavík
Verð
98.000 kr.kynningarverð, fullt verð 120.000 kr.

Ef einhver fylgist með tækinu þínu: hnappurinn efst til hægri fer strax af þessari síðu. Það er samt ekki hægt að má vafranotkun alveg út — öruggast er að skoða síðuna í huliðsglugga eða í síma eða tölvu sem viðkomandi kemst ekki í.

Dagskrá

Sex skipti, sex þriðjudagar

Hvert skipti stendur í tvær klukkustundir, frá 17:00 til 19:00.

  1. 6. okt Nauðsynlegar aðgerðir og kynning
  2. 13. okt Hvað er ofbeldiÞróun, birtingarmyndir og afleiðingar
  3. 20. okt Hvernig komst ég hingað og af hverju bregst ég svona við?
  4. 27. okt KerfinHvernig virka þau — hagnýt fræðsla
  5. 3. nóv Hvernig dreg ég úr sársaukafullum samskiptum við barnsföður minn?
  6. 10. nóv Hvernig vernda ég börnin?
Af hverju að taka þátt

Þrjár ástæður

Tvær fagstéttir á sama stað

Lögmaður og sálfræðingur með mikla þekkingu og reynslu af málaflokknum.

Hagnýtar leiðir sem virka

Stuðningur og aðstoð í gegnum flóknar aðstæður, með börnin í forgangi.

Þú ert ekki ein

Trúnaður, öruggt rými og skilningur.

98.000 kr.
Kynningarverð · fullt verð 120.000 kr.

Mörg stéttarfélög niðurgreiða námskeiðsgjöld að hluta eða öllu leyti. Athugaðu hjá þínu félagi áður en þú skráir þig.

Skráðu þig
Leiðbeinendur

Hverjar við erum

Sigrún Jóhannsdóttir

Sigrún Jóhannsdóttir

Landsréttarlögmaður

Meistaragráða í fjölskyldumeðferð. Sérhæfð í forsjár- og ofbeldismálum.

Lilja Sif Þorsteinsdóttir

Lilja Sif Þorsteinsdóttir

Sérfræðingur í klínískri sálfræði

Sérhæfð í flóknum áföllum og með mikla reynslu af vinnu með þolendum ofbeldis í nánum samböndum.

Spurningar

Það sem konur spyrja okkur að

Hvað ef ég er ekki viss um að þetta sem ég bý við sé ofbeldi?

Þú þarft ekki að vera búin að gefa því nafn. Margar konur koma einmitt til þess að átta sig á því hvað hefur gengið á — og annað skiptið er helgað þeirri spurningu einni.

Hvað ef ég er enn í sambandinu?

Það er í lagi. Námskeiðið gerir ekki kröfu um að þú sért farin eða að þú sért búin að ákveða að fara.

Er þetta trúnaðarmál? Hver veit að ég er á námskeiðinu?

Við ræðum ekkert sem fram fer í hópnum utan hans, og þátttakendur gera samkomulag um trúnað í fyrsta skipti.

Færslan á greiðsluyfirlitinu þínu kemur frá sálfræðistofu eða lögmannsstofu og nefnir hvorki námskeiðið né ofbeldi.

Þarf ég að segja frá minni sögu fyrir framan hópinn?

Nei. Þú ræður alveg hversu mikið þú deilir. Sumar tala mikið, aðrar hlusta mest allan tímann — hvort tveggja er í lagi.

Hvað ef ég kemst ekki eitt skiptið?

Láttu okkur vita og við finnum út úr því með þér.

Get ég fengið námskeiðið niðurgreitt?

Mörg stéttarfélög niðurgreiða námskeiðsgjöld að hluta eða öllu leyti. Athugaðu hjá þínu félagi hvað það styrkir.

Hvað ef barnsfaðir minn kemst að þessu?

Þú átt rétt á að sækja þér fræðslu og stuðning um þína eigin stöðu, og það er ekkert við það að athuga þótt þú gerir það.

Ef þú hefur samt áhyggjur af viðbrögðum hans, segðu okkur frá því þegar þú hefur samband. Við förum yfir það með þér áður en námskeiðið byrjar.

Skráning

Skráðu þig á námskeiðið

Skráningin tekur um mínútu. Þú þarft ekki að útskýra aðstæður þínar — það dugar að láta okkur vita að þú hafir áhuga. Við höfum samband innan þriggja virkra daga.

Skráðu þig

Sendu okkur fyrirspurn

Ef þig vantar frekari upplýsingar eða eitthvað er óljóst. Farið er með allar fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þú þarft ekki að skrá þig til að spyrja.

Eða sendu póst beint á heilshugar@heilshugar.is.